..svo hér koma nokkrir fróðleiksmolar um mig - verði ykkur að góðu!
4 STÖRF SEM ÉG HEF UNNIÐ VIÐ:-arfareitingameistari í allt of mörg ár
-búðarkona, í gamla daga í Hagabúðinni og ekki svo mikið gamla daga í Rammagerðinni
-talsímakona á talsambandi við útlönd + 118
-kúkableijumeistari á Ægisborg í gamla daga og í Köben í fyrra...ljúfar minningar ikke?
4 KVIKMYNDIR SEM ÉG GÆTI HORFT Á AFTUR OG AFTUR:-ég get yfirleitt horft á myndir oft þar sem ég er gædd þeim eiginleika að gleyma - svo sömu brandararnir eru fyndnir aftur og aftur og aftur og aftur...... og hvað var aftur plottið í Usual Suspects???? best að horfa bara á hana í sjöunda sinn og rifja það upp! Groundhog Day fær samt ekki að rúlla eina ferðina enn fyrr en í hárri elli.
-annars er eina myndin sem ég hef átt á spólu og horf á aftur of aftur og aftur af einskærri ánægju og löngun Four Weddings and a Funeral en það var nú aðallega af því að Hugh Grant var svo sætur.
4 STAÐIR SEM ÉG HEF BÚIÐ Á:-Hjarðarhagi 56 á fimmtu hæð með útsýni sjóinn og margar æskuminningar
-Víðimelur 64 sem er ennþá "heima" og mun seint missa þann titil
-Calle Ferran og Comte de Urqell í Barcelona margt misjafnt mjölið í pokahorninu þar
-Öresundskollegíið á Amager litla holan okkar Óla sem hefur þó sinn sjarma
4 SJÓNVARPSÞÆTTIR SEM MÉR LÍKAR:-24 ég er að missa mig
-Tvöfaldur Frasier alltaf góður - og fer vel með matnum
-Will og Grace því þau eru alltaf á eftir Frasier eða undan - góð með uppvaskinu
-Desperate Housewives meira svona upp í sófa eða þegar ég er löt
4 STAÐIR SEM ÉG HEF HEIMSÓTT Í FRÍI:-Danmörk og Noregur og Svíþjóð voða kósí allt saman
-Ibiza og London hérna í denn
-Slóvenía og Feneyjar í einum kórpakka
-Prag fallegasta borgin af öllum og rómantískust
-Já og svo er líka gaman að fara til Jótlands
4 SÍÐUR Á NETINU SEM ÉG HEIMSÆKI DAGLEGA:-æ það er nú aðallega pósturinn minn og svona, er ekkerts svo dugleg við daglegar heimsóknir en kíki reglulega á alla linkana mína hérna til hliðar...til þess eru þeir nú.
4 UPPÁHALDS MATUR:-Ís - ég sakna gamla íssins og súkkulaðisósunnar
-svo margt svo margt að ég get ekki gert upp á milli
-allur matur sem er gúmmelaði er uppáhaldsmaturinn minn
-en mér finnst sellerí ekkert spes og nenni ekki að tyggja tyggigúmmí, svo er ég ekki hrifin af lifur því hún er svo skrítin undir tönn þó að sósan sé góð
4 STAÐIR SEM ÉG MYNDI FREKAR VILJA VERA Á ÞESSA STUNDINA:asnaleg spurning - ég myndi hvergi annars staðar vilja vera en einmitt hér heima í svefnherbergi ein fyrir framan tölvuna að svara svona spurningum - er ekki lífshamingjan fólgin í því að vera ánægður þar sem maður er eða allavega gera sitt besta til þess að vera það?
Þetta var speki dagsins í boði Láru