miðvikudagur, maí 30, 2007

Heyrst hefur að skrif mín hér þyki nokkuð súr á köflum og lítið upplýsandi. Því vil ég fræða fólk um það að ég er flutt til Íslands og bý nú með ástarmaka mínum á Hverfisgötunni í hinni nýju og litríku íbúð. Þar hyggst ég verja næstu mánuðum í lokaverkefnavinnu sem er ennþá á frumstigi. Málningar og litavinnunni er þó ekki lokið enn og margt af fallegum hlutum verma ennþá kassa í stofunni. Það er samt gott að eiga nýtt heima sem er meira að segja heima heima (nú á ég bara eitt heima en ekki þrjú sem er mikill léttir - tja kannski eitt og hálft).

Þá vitið þið það.

3 ummæli:

Nafnlaus sagði...

thú átt ennthá bók hjá mér. hvenær ætlardu ad koma ad sækja hana?

Lára sagði...

Vilt þú ekki glugga í hana jörgen minn? Ég valdi hana nú alveg sérstaklega með þig í huga.

Mína sagði...

Súr? Mér finnst þú nú bara alltaf sæt :)