Gulur og hvítur og fjólublár og blár og málarahvítur - þetta eru allt fallegir litir í heimilislitrófinu á Hverfisgötunni. Litirnir sem gefa lífi mínu lit er ég sit og les og reyni að finna út úr því hvað í ósköpunum ég geti nú skrifað heila mastersritgerð um. Ekki skemma fyrir sterkfagurbleiku rúmfötin nýju sem gæða litrófið ákveðinni dýpt og gleðja augun þegar tekin er hvíld frá amstrinu. Bleiki liturinn harmónerar líka vel við dauffjólubláa gluggavegginn í svefnherberginu.
Lifum lífinu í lit.
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
3 ummæli:
velkomin til lífsins á blogginu og hins litríka Íslands :)
takk fyrir :) þú færð fyrstu verðlaun fyrir að vera sú fyrsta til að taka eftir nýja málgleðilífinu mínu!
Ég ákvað að lifa lífinu bara í málarahvítu... ég kem bara í heimsókn til þín þegar það er orðið of dauft yfir mér.
Knús,
Þórunn
Skrifa ummæli