fimmtudagur, júlí 12, 2007

obbobbobbb

Mikið óskaplega líður tíminn hratt. Maður skrifar að það sé að koma helgi og veit ekki af því fyrr en það er bara AFTUR að koma helgi! Og hvað varð manni úr verki síðan síðast? Tja það er nú góð spurning. Sumarið er tíminn. En hvert fór tíminn? Því sumarið er hálfnað - svo gott sem. Ekki það að margt skemmtilegt hefur drifið á daga mína það sem af er liðið sumri, kaffiboð og afmæli og matarboð og sólarhangs og sundlaugagrín og leikhúsferð og ég veit ekki hvað og hvað...og ritgerðaskrif...ha? bíddu ritgerð?

obbobbobbb

1 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Já talandi um helgi þá vil ég ekki heyra minnst á neinn prjónaskap næsta þegar ég hringi í þig á föstudegi. ... ;-) Vona þú hafir það gott og hittumst þegar ég kem aftur til lands ísa ! Knús Mæja