fimmtudagur, maí 18, 2006

Í dag!

Sit á sloppnum í eldhúsinu. Er á leiðinni að fara að skila verkefni sem er búið að taka allt of langan tíma. Þrjár manneskjur búnar að vinna að því í meira en tvo mánuði..með nokkrum prófum inn í milli svo sem. Frá morgni til kvölds og aftur morguninn eftir og fram á kvöld. Nafnið mitt var komið á dyrnar heima hjá hópsysturinni sem við unnum hjá. Það var tekið niður með viðhöfn í gær. Í dag munum við skila DEGI of SNEMMA! Ekkert meir á síðustu stundu takk fyrir!

Langaði bara að deila þessu með ykkur því ég er stolt af verkefninu mínu.

2 ummæli:

d sagði...

Til Hamingju!!!

Nafnlaus sagði...

Til hamingju Lára mín, verkefnið er svaka flott, hlakka til að fá að lesa það... hmm..

Þórunn